UM ARA

Ari er sérfræðingur í landupplýsingum og mikill áhugamaður um listræna kortagerð. Ari Maps er safn af verkum sem eru unnin úr gömlum atlaskortum meðal annarra frumverka unnin frá grunni. Sem stendur starfar hann sem verkefnastjóri í vindorkuþróun hjá Qair Ísland. Ferilmöppu (e. portfolio) er að finna á www.quintanamaps.com.
UM KORTIN
Flest kortin á Ari Maps eru unnin úr gömlum skönnuðum pappírskortum frá fyrri hluta 20. aldar. Ýmist koma þau frá Herforingjaráði Danmerkur, Geodætisk Institut, og Kortadeild Bandaríkjahers, meðal annarra. Kortin eru svo blönduð við nákvæmt hæðarlíkan af hverjum stað fyrir sig í landupplýsingakerfi (ArcGIS Pro) og loks unnið í þrívíddarforriti (Blender) og Photoshop.
